Klesspíkurokk
Kallinn :o)
16.01.2005 18:59:14 / hrodny

Hann Jón Bö. er svona sundbolti!-Mæja.

kaffigerðarstund hjá okkur Mæju núna og ekkert annað. Já, það er kominn sunnudagur sem er ekkert sérstaklega gaman því þá er alveg að koma mánudagur sem er heldur ekkert gaman8|. Meeeeen hvað þetta kaffi er sterkt!!!....maður ætti allavega að lifa kvöldið af. Ég þarf nebblega að klára hina yndislegu bók Pygmalion og gera ýmislegt annað skemmtilegt.

Nú styttist í bikarleikinn okkar Laugdælastelpna. Það verður bara gaman þó að Mæja haldi því fram að við munum tapa þeim leik, þó með glæsibrag segir hún.

Bergþóra babe á afmæli á þriðjudaginn og verður hvorki meira né minna en 20 ára gömul. Þá er það á hreinu hver fer í mjólkurbúðina fram í mars allavega:D. Fiskurinn hennar Bergþóru dó líka áðan (veit ekki hvort það var Tommi eða Jenni) þannig að þið vitið þá hvað hana vantar...hehehehehe..

Ég var spurð að því um daginn hvort mig langaði ekki að skella mér til Noregs um páskana en það mál á allt eftir að skýrast. Maður er nú að fara til London í apríl og Mexíkó í júní þannig það er nóg að gera8).

Lokaorð: Halelúja fólk......


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.01.2005 19:33:59 / hrodny

Um körfubolta...og margt fleira...

Komið þið sæl og verði ykkur að góðu

Helgin mín er bara búin og ný vika að hefjast. Þar sem ég er ekki í skólanum á föstudögum....ummm sweet...þá hefjast mínar helgar klukkan u.þ.b. hálf 4 á fimmtudögum. Jæja, helgin sem er að klárast hófst sem sagt síðasta fimmtudag með Reykjavíkurferð. Þar kíkti ég á unaðslegan skiptibókamarkað og svo brunaði ég í hina yndislegu Kringlu;). Þar hitti ég Aron loksins eftir alltof langa fjarveru (sem verður meira að segja lengri núna:|).

Áður en við fórum á Vatnið ákvað ég að fara í krabbameinsvaldandi ljósabekk sem var svona líka ágætt. Við Laugdælastelpur spiluðum við Tindastól á laugardaginn og unnum þær. Þetta var bikarleikur og þýðir þá að við erum komnar í undanúrslit...svo spennandi..Vúhú!  Helgin var svo bara róleg og Mjög góð;)!

Svo er ég að vona að ég fái aukatíma í íþróttahúsinu um næstu helgi því þá er stefnan að hafa aukaæfingar fyrir stelpurnar mínar í körfunni:lol:.

Jæja, jæja...www.folk.is/majatorunn er komin í heimsókn!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.01.2005 17:45:37 / hrodny

Miðvikudagurinn 5. janúar 2005

Hæbb

Hroddarakvikindið (eins og einn mætur maður komst svo skemmtilega að orði:!:) er mætt á Vatnið og allt komið á milljón:!:. Veðrið er að gera mig alveg craaaazy með þessari óákveðni. Það er ýmist svona líka fallegt vetrarveður eða alveg brjálað engrarárstíðarveður.

En já, skólinn byrjaður aftur sem er alveg ágætt....síðasta önnin í framhaldsskóla framundan:lol:......gaman að því bara. Thö görls in da Klesspíks eru bara hressar og allar að verða gengnar ljúflega út. Jebb, skjótt bátast veður í lofti!!! 

Ég ætla að halda áfram með fyrsta heimaverkefnið mitt á önninni sem er í ensku en ekki hverju???!!! Ég er einmitt að skrifa um estrogen....mjög spennandi sko.

Undir og inn fólk. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2004 15:16:33 / hrodny

"Ég var bara að gera ógeðisdrykk"

Jebbs, jólin komin og síðustu dagar hafa einkennst af mikilli leti og engu öðru:S. Aron mætti á svæðið annan í jólum og fékk að kynnast familíunni í essinu sínu (hlátur, grátur, sull, bull og miklu fleira). Svo skelltum við okkur á diskó uppí félagsheimili ásamt slatta af stelpum sem höfðu setið og sötrað fyrr um kvöldið heima hjá mér. Umræðurnar voru kannski ekkert svakalega "strákavænar" til að byrja með en hvaða strákur hefur ekki gott af því að fylgjast með umræðum stelpna um pilluna, framhjáhöld, Opruh o.fl.:lol:.

Í morgun vaknaði ég svo við ansi mikil læti....Kári og Ásthildur höfðu þá vaknað hress og kát (eins og alltaf) og ákveðið að það væri ótrúlega sniðugt að gera ógeðisdrykk. Þá voru teknir einhverjir 5 pottar og í þá sett mjólk, sinnep, tómatsósa (sem var líka sett í miklu magni í hár gleðipinnanna) og fleiri sósur sem þau fundu í ísskápnum. Ummmm, svo var auðvitað sullað mikið í þessu sem varð til þess að það varð allt viðbjóðslegt:!:. Ég vaknaði við það þegar upp um þessa aðgerð komst en hætti mér ekki fram. Ég lá því í rúminu til rúmlega 13...usssusss.

Svo er það bara diskó á gamlárs og ekkert annað.

Allir í íþróttasalinn í kvöld klukkan 19:30!!!   


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.11.2004 10:46:46 / hrodny

Tindastóll vs. Laugdælir

Halúú.....

Þá er alveg að koma helgi og körfuboltaleikur framundan. Ferðinni er heitið á Krókinn á morgun og þá þýðir ekkert annað en að vona að færðin og veðrið verði í lagi. Dúfa reddar þessu bara;).

Vikan er búin að vera nokkuð bókuð. Við Járnþrúður lentum í smá brasi á miðvikudaginn. Afturrúðan tók uppá því að SPRINGA í ca. ÞÚSUND mola sem mér þótti allt annað en sniðugt. En þá kom Óli bara og reddaði þessi. Klessti plastpokum fyrir gatið til bráðbirgða og fór svo í að finna nýja (gamla) rúðu í staðin. Hann var ekki lengi að því og við brunuðum í borgina í gær og ég keypti rúðuna. Núna er meira að segja búið að setja rúðuna í og ég held að ég geti náð í elskuna mína í dag. En þá bíður mín mikið verk við að ryksuga brotin uppúr sætunum, af beltunum og af gólfinu. Svaka stuð.

Jæja, Mæja (neih, rím og alles) er komin og þá er ég farin8).

Ble, ble....


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2004 11:45:29 / hrodny

Laugardagur til lukku

Arrrg....þetta er alltaf að koma fyrir mig! Ég er búin að skrifa alveg gommu af rugli en svo geri ég eitthvað vitlaust og allt hverfur bara til Kína eða eitthvað:^).

Jæja, taka 2. Buff með svaka fínt ball hérna á neðstu hæð ML. Ég var hins vegar í Ölsölunni æðislegu ásamt Beggu bjútí og Hrönn gellu. Við skemmtum okkur konunglega við að horfa á mikið ölvaða 1. bekkinga við það að dansa frá sér allt vit, og helst með buxurnar niður fyrir rass (stelpur og strákar). Það hefðu reyndar mátt vera fleiri á ballinu en fínt ball engu að síður.

Gærdagurinn einkenndist af mikilli þreytu og ekki laust við örlítið heilsuleysi á kellingunni:|. Eftir fund í KB banka á Sellaranum, sem hófst kl 15, var brunað aftur á Vatnið og við tók langþráð legging. Hún var ljúf og stóð ansi lengi (17-20:30). Svo var það IDOLIÐ fræga. Eftir það var kíkt á vistarstemmarann og síðan Ölsalan.

Núna tekur við læringur í einhverja stund og kannski maður skelli sér í borg óttans síðar í dag. Aldrei að vita;).


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.11.2004 11:16:04 / hrodny

Guten Tag

Unnum leikinn í gær....bara nokkuð létt;) og nett. Man ekki alveg tölurnar en þær voru fínar.

Það var svaka djamm í gær. Allir úr 4. bekk að skemmta sér og þegar það gerist þá er stuuuuð. Það var Pakkarinn á Sellaranum og við Mellingar áttum staðinn.

Æi, nennan er ekki alveg að meika það þannig ég er hætt í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2004 23:39:27 / hrodny

UMFL vs. UMFH

Ó nei...ég er sko ekki að jafna mig eftir leikinn ennþá því að framundan eru bjartir og góðir tímar (blóm og fiðrildi:D).

Næsti leikur er á fimmtudaginn og er það fyrsti heimaleikurinn okkar. Við vonumst auðvitað eftir því að húsið fyllist af liði sem mun garga úr sér lungum til að styðja okkur. Ég efast ekki um að Laugvetningar og nærsveitamenn fjölmenni á fimmtudaginn. Vil líka taka það fram að pizzur verða seldar á staðnum og það er því tilvalið fyrir svanga Mellinga að koma (eftir óæti mötuneytisins) og fá sér að borða:!:.

Komst að því áðan að ég er víst afbrigðileg þar sem ég stundaði ekki handklæðahýðingar í búningsklefanum þegar ég var í grunnskóla:|. Það var líka mest kúl við þetta allt að allir voru allsberir við þennan atburð sem þótti með eindæmum skemmtilegur. Ég fékk reyndar aðeins að prófa þetta frammi á gangi....EKKI ALLSBER SAMT....(það hefði nú reyndar verið fyndið)...þegar við Óli áttumst við með blautum handklæðum frá Jóa. Já, nokkuð magnað enda rústaði ég Óla í þessu.....Sorry kallinn minn, ég er bara betri en þú í handklæðahýðingu:haha:.

Járnþrúður er greinilega ekki alveg tilbúin í einhvern fjandans kulda því ég læsti henni áðan og hún neitaði að opna aftur. Ekki nóg með það heldur mátti ég ekki einu sinni fá körfuboltaskóna, körfuboltann eða brúsann (ég sem var á leiðinni á æfingu). Ég hélt hún væri eitthvað biluð þar sem ég var búin að þjösnast aðeins á henni (vá, hljómar illa) en þá var þetta ekkert henni að kenna. Hún var bara freðin.....það kemur nú fyrir besta fólk;).

Góða nótt


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.11.2004 14:26:01 / hrodny

Une journée á Paris...

Pennavinir....er til eitthvað sorglegra? Held ekki:(. Gríma frönskukennari er að láta okkur finna einhvern franskan pennavin á netinu sem við eigum svo að skrifa, á frönsku auðvitað. Mér líst nú ekkert alltof vel á þetta verkefni hjá henni...well...

Alveg að koma helgi og það er alveg ótrúlega ánægjulegt. Svo er leikur á morgun. Laugdælir vs. Hamar/Selfoss. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður í Hveragerði. Hvet alla til að koma og styðja sínar konur (Laugdæli sem sagt;)).

Er farin að franskast eitthvað.


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2004 11:48:55 / hrodny

Watergate......

Mætt í íslenskutíma dauðans. Vefsíðugerð og læti og verst við þetta allt saman er að ég og tölvur eigum því miður ekki samleið...nema kannski þegar kemur að Word og kannski aðeins að netinu. Svona er það að vera tölvufötluð:|. En takið eftir, það er allt í lagi þó ég geti ekkert í Front Page því kærastinn hennar Völu kann á það:D.

Ætli ég verði nú samt ekki að fara að gera eitthvað að viti núna. Gummi töffari er farinn að vafra hérna um stofuna8|.

Farin að leita að einhverju um Watergate málið..........


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2004 21:09:42 / hrodny

Extreme makeover

Nýtt og betra útlit á síðunni...eða hvað finnst hinum almenna hamborgara um það?

Sofnaði aðeins í dag, reyndar ekkert aðeins neitt. Svaf frá ca. hálf sex til klukkan að verða átta:|. Á mínum sofimælikvarða telst það nokkuð gott af leggingu að vera. Fékk svo ansi skemmtilega símhringingu áðan...Sting hringdi í mig og söng aðeins til mín. Nei, ég er ekki að plata!!! Þannig er það nefnilega að foreldrar mínir eru staddir í "heimsókn" hjá honum, sem við tölum, ásamt fullt af öðru fólki reyndar og eru þar að hlusta á hann syngja og spila:lol:.......aðeins betra maður!

Ég fór á körfuboltaleik í dag...mínir menn (Laugdælir) unnu að sjálfsögðu hnakkalega Eyjamenn sem réðu bara ekki neitt við neitt:!:.

Svo er það enn ein vikan framundan með öllu sem því dæmi fylgir. Ussumbuss, ótrúlegt en satt þá virðist ég alltaf fyllast endalausri leti á sunnudögum og ekki nóg með það heldur langar mig engan veginn að byrja vikuna sem framundan er:(. Þetta er nú kannski eins slæmt og það hljómar en úff...svo erfitt líf (jú, jú ég veit að ég er bara 19 ára samt).

Farin að leita að tannburstanum...


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2004 14:06:46 / hrodny

Franska frh.

Sæl aftur

Þetta gekk bara ágætlega held ég...Ég og Vala erum náttúrulega snillingar í frönsku svo ekki sé minnst á þýsku sem er okkar annað mál!!!

Jæja, jæja. Hef ekkert merkilegt að segja í bili.

En þar til næst....Relax in mæjónes...


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2004 13:52:50 / hrodny

Franska

Nú er ég stödd í frönskutíma hjá Grímu. Erum að halda fyrirlestra um þekktar byggingar í París. Verð að þjóta....

Farin að leita að La Tour Eiffel...


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2004 23:15:52 / hrodny

Pakkarinn klikkar ekki

Jæja, þá er farið að róast á vistinni. Margir farnir á Selfoss að djamma allt vit frá sér:lol:. Ég ætla hins vegar bara að vera róleg í kvöld þar sem keppnisferð á Ísafjörð er framundan (nánar tiltekið á laugardaginn).

Frí hjá mér á morgun, nokkuð nett. Útsof og brjálæði bara, ætla reyndar líka að reyna að þrífa eitthvað hérna í herberginu mínu:S. Það verður gaman.

Æi, góða nótt8|.

Farin að leita að silkiþræði....


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2004 16:20:14 / hrodny

Kaffihúsakvöld í kvöld!!!

Ohh, ég er svo löt. Var að koma inn frá því að dreifa miðum um KAFFIHÚSAKVÖLDIÐ SEM VIÐ Í 4. BEKK ÆTLUM AÐ HALDA Í KVÖLD og nenni hreint ekki neinu! En ég get þó huggað mig við það að þessi vika er stutt, byrjaði í dag og endar á fimmtudaginn (frí hjá Grímu og Gumma á föstudaginn nebblega).

Svo er það bara Klakafjörður um helgina. Fyrsti leikurinn okkar í deildinni að renna upp...Vei, vei...Það verður örugglega gaman en ég vona samt innilega að við verðum ekki veðurteft þarna á sunnudaginn, 7-9-13.

Farin að leita að tölvupóstinum mínum....


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3